17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2343 í B-deild Alþingistíðinda. (3388)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Páll Zóphóníasson:

Ég þarf eiginlega ekkert að segja, því hv. frsm. meiri hl. hefir ekki á nokkurn hátt hrakið, að nauðsyn sé að hafa stöð á Þúfu. Það, að hann lætur sér detta í hug, að hinir bæirnir heimti síma, sýnir, að það er þörf að taka það fram, að stöðin eigi að vera á Þúfu.