18.12.1934
Sameinað þing: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í B-deild Alþingistíðinda. (349)

1. mál, fjárlög 1935

Forseti (JBald):

Það er rétt, að ég hefi sagt hv. þm., að fundi yrði slitið um tólfleytið. En nú er beðið eftir þskj., sem þarf að ná útbýtingu á þessum fundi, og ég skora því á hv. 5. landsk., sem er næstur á mælendaskrá, að nota tímann, því að ekki er hægt að slíta umr. vegna þeirra hv. þm., sem hafa gengið af fundi í þeirri trú, að fundinum yrði slitið kl. 12.