08.12.1934
Efri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2623 í B-deild Alþingistíðinda. (3540)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Forseti (EÁrna):

Það hafa komið fram tilmæli um að fresta umr. En bæði er það, að miklar annir eru nú og því nauðsyn á, að framgangur mála verði sem greiðastur, og hitt, að flestir hafa nú þegar falað í þessu máli eins og þingsköp leyfa.

Mér hafa ekki borizt tilmæli frá meiri hl. allshn., sem flutti málið að fresta umr., og mun ég því ekki gera það. Fundi verður nú frestað til kl. 5 og heldur umr. síðan áfram.