11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2627 í B-deild Alþingistíðinda. (3548)
156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna
Gunnar Thoroddsen:
Ég hafði búizt við, að hæstv. forsrh. gerði grein fyrir frv. (Forsrh.: Ég hefi fallið frá orðinu). Mér finnst vera ástæða til að ræða þetta mál nokkuð áður en því er vísað til n., og býst ég við, að allmiklar umr. geti orðið um það. Ég vildi því beina því til hæstv. forseta, hvort ekki væri rétt að fresta umr. til morguns, vegna þess að komið er fram á nótt. Þetta er 1. umr., og þá mun vera venja að ræða málin almennt. (JakM: Það er ekki hægt að vísa málinu til n.).