15.12.1934
Neðri deild: 61. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2628 í B-deild Alþingistíðinda. (3558)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Frsm. (Bergur Jónsson):

Allshn. hefir tekið þetta mál fyrir, og að mér skilst, eru allir nm. sammála um höfuðatriði frv. 3 af nm., hv. 2. þm. Reykv., hv. 1. landsk. og ég, eru sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, en hv. 8. landsk. og hv. þm. Snæf. áskilja sér rétt til þess að bera fram brtt. við frv.