17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2638 í B-deild Alþingistíðinda. (3568)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

3) ÁÁ:

Í sjálfu sér er ég samþ. meginhugmynd frv., um aldurshámark embættis- og starfsmanna ríkisins, en aðeins sem heimild, sem grípa megi til, ef á þarf að halda. En þar sem ekki er í frv. séð nægilega fyrir embættismönnunum, þegar þeir eiga að hætta, og fleiri ákvæði eru þar, sem ég tel athugaverð, þá segi ég nei.