19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (3587)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Héðinn Valdimarsson:

Það er öllum vitanlegt, hvernig þessu málþófi sjálfstæðismanna er varið. Þar sem nú er stutt til þingslita og þeir hafa von um að geta drepið málið með því að halda umr. um það nógu lengi áfram, þá vil ég fastlega skora á hæstv. forseta að leyfa ekki frekari umr. Því að samkv. þingsköpum á að bera þetta upp umræðulaust.