05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (3620)

150. mál, fiskimálanefnd

Jóhann Jósefsson:

Hæstv. ráðh. þykist nú gera vel að slaka til um einn dag í þessu máli, en ég vil segja honum það, að hann gerði ekki nema það, sem skylt var undir þessum kringumstæðum. En þar sem hæstv. ráðh. segist vænta þess, að brtt. verði útbýtt í dag, þá verð ég að benda honum á, að ég og fleiri höfum beðið og bíðum enn eftir umsögnum Landsbankans og sölusambandsins, og er því hæpið, að brtt. okkar geti farið í prent í dag, hvað þá heldur, að þeim verði útbýtt.