08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2404 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

150. mál, fiskimálanefnd

Ásgeir Ásgeirsson:

Þessi grein er sett til þess að þrýsta fiskframleiðendum til að hafa samvinnu með sér. Í l. í Noregi hefir svipuð heimild verið síðan 1931, og hefir hún aldrei orðið að tjóni. Ég sé því ekki ástæðu til þess að fella niður gr., enda þótt ég geri ráð fyrir, að hún komi ekki til framkvæmda, og segi því nei.