08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2404 í B-deild Alþingistíðinda. (3641)

150. mál, fiskimálanefnd

Hannes Jónsson:

Hv. þm. V.-Ísf. og hv. þm. Mýr. hafa nú lýst því yfir, að þeir vilji ekki missa þessa gr. úr frv., en voni samt, að hún komi aldrei til framkvæmda. En ég vil losna við greinina, af því að ég er því mótfallinn, að hún komi til framkvæmda, og segi því já.