08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (3649)

150. mál, fiskimálanefnd

Sigurður Kristjánsson:

Þótt það sé sannfæring mín, að meiningin með þessari till. er fyrst og fremst að fá efni í skrumfyrirsagnir í sorpblöðum stjórnarflokkanna, og flm. ætlist ekki til þess, að hún komi til framkvæmda, nema þá að úthlutað verði skemmtiferðastyrkjum til gæðinga stjórnarinnar, þá er till. réttmæt eftir orðanna hljóðan, og segi ég því já.

Við atkvgr. um frv. sjálft gerði einn þm. svo hljóðandi grein fyrir atkv. sínu: