08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (3650)

150. mál, fiskimálanefnd

Thor Thors:

Ég vildi gera lítilsháttar grein fyrir atkv. mínu, áður en ég kveð þetta frv. úr d. Ég er ekki gamall maður og hefi ekki mikla reynslu að baki. En ég hefi talsverða þekkingu á þessu máli. Ég hefi öðlazt þá þekkingu í langdvölum með markaðsþjóðunum; þar hefi ég kynnzt óskum viðskiptamanna og fleiri, sem mál þetta snertir. Og ég tel frv. í heild háskalegasta frv., sem fram hefir komið á þessu þingi. Það vildi ég láta koma skýrt fram; segi ég því ákveðið nei.