28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2663 í B-deild Alþingistíðinda. (3690)
161. mál, síldarútvegsnefnd
Jakob Möller [óyfirl.]:
Það er náttúrlega ákaflega fróðlegt erindi, sem hv. þm. Ísaf. hefir flutt hér um álit og till. þessarar brezku síldarmálanefndar! En það er bara dálítið skrítið, að eftir að hann var búinn að lýsa yfir, hversu nákvæmlega þessu frv. bæri saman við till. brezku nefndarinnaar, þá skildist mér, að ekkert af því, sem hv. þm. skýrði frá, að væri í brezku till., sæist í þessu frv. Hv. þm. skýrði frá því, að brezku síldarn. væri ætlað að ákveða um tölu síldveiðiskipa við strendur Bretlands, hvaða veiðarfæri þau nota, og ennfremur ætti hún að ákveða veiðitíma og veiðisvæði fyrir skipin. Ég skal nú að vísu játa, að ég hefi ekki lesið þetta frv. nema lauslega, en þessi ákvæði hefi ég ekki fundið í frv., og hv. þm. vildi máske benda mér á þau. Hinu gerði hv. þm. auðvitað enga grein fyrir, að í þessu frv. eru ákvæði, sem ekki eru til í áliti brezku nefndarinnar; er það óneitanlega kynlegt, þar sem hann var að gera hv. þd. grein fyrir því og sannfæra hana um, að till. meiri hl. sjútvn. og brezku n. væru nákvæmlega samhljóða. Hvers vegna nefnir hv. þm. ekki aðalatriðin í þessu frv. og tilsvarandi ákvæði í till. brezku n.? Ég skal játa, að ég er ekki búinn að lesa frv. sem skyldi, en þó vil ég sérstaklega benda á, að ég hygg, að í till. brezku n. finnist ekki ákvæði tilsvarandi þeim, sem eru í 5. gr. þessa frv. um valdsvið síldarútvegsnefndar, a. m. k. lét hv. þm. þess ekki getið.
Annars er ekki hægt að ræða þetta ýtarlega, þar sem hv. þdm. hafa ekki séð till. brezku síldarn. og tæplega heyrt þeirra getið, nema e. t. v. þessi hv. þm. Þó lét hann þess getið, að hann hefði aðeins fengið lauslegar fréttir um það nýlega, að búið væri að skipa síldarn. í Bretlandi.
Ég tel sjálfsagt, að form. sjútv. leggi till. brezku n. fyrir sjútvn., og þá upplýsist væntanlega, hvort þær eru nákvæmlega eins og þetta frv., og ég tel einnig víst, að hv. sjútvn. birti útdrátt úr þeim í nál., sem fylgdi frv. til 2. umr. Það væri ágætt að fá þessar heimildir áður en frv. um fiskimálanefnd o. fl. kemur hér næst til umr. í þd.
Þess er að vænta, að hv. formaður sjútvn., þm. Ísaf., afli sem flestra gagna í þessum málum, svo að honum takist að leiða hv. þdm. í allan sannleika.