01.11.1934
Efri deild: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (3788)

76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Við, sem erum í meiri, hl. fjhn., höfðum ætlað að vera búnir að gera brtt. við frv. fyrir þessa 2. umr. En við höfum nú í smíðum nokkrar till. um breyt. á frv., og með því að ekki liggur fyrir að bera þær fram skriflega hér í hv. d., þá mælumst við til þess við hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá nú og taki það á dagskrá aftur ekki síðar en á laugardaginn kemur, þ. e. að tveim dögum liðnum.