11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í C-deild Alþingistíðinda. (4029)

46. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Flm. (Gísli Guðmundsson):

Ég vil taka það fram út af ræðu hv. þm. V.-Húnv., að ég efast um, að hann geti treyst sér til þess að útskýra l. þessi, vegna fjárkreppu, frá 1933, og ég efast um, að hann geti fengið Alþingi og ríkisstj. til þess að fallast á þetta. Eins og nú standa sakir um þetta mál, mun ég halda fast við þetta frv.