02.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í C-deild Alþingistíðinda. (4051)

46. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Páll Zóphóníasson:

Ég ætlaði ekki að blanda mér mikið í þessar umr., en af því að hv. 8. landsk. sagðist sanna mál sitt með óyggjandi tölum, langar mig til að gera til hans eina fyrirspurn. Vill hv. þm. sanna, að þessi félög hafi fengið styrk til að reka frystihúsin? Hvaðan hafa félögin fengið styrk til þess að reka þessa starfsemi? Vill hv. 8. landsk. svara þeirri spurningu?