10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í C-deild Alþingistíðinda. (4085)

50. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Bjarni Ásgeirsson:

Það er vitanlegt, að n. afgreiðir frv. á sínum tíma. En eins og ég sagði, er ekki hægt að taka eitt mál út úr mörgum samkynja, því afgreiðsla þessa máls fer nokkuð eftir því, hvaða undirtektir önnur atriði þess, sem n. ber fram, hljóta. N. getur ekki tekið fasta afstöðu til frv. fyrr en hún hefir komizt að fastri niðurstöðu um önnur atriði málsins. Mun ekki líða á löngu áður en það verður.