21.12.1934
Sameinað þing: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

1. mál, fjárlög 1935

Thor Thors:

Þessa brtt. hefi ég flutt til samræmis við brtt. fyrir Ísafjörð, vegna þess að margir þm. hafa tjáð mér, að sama muni ganga yfir báða þessa staði um ábyrgð fyrir rafvirkjun. Ég vil biðja hæstv. forseta um nafnakall um þessa till., af því hún felur í sér samþykkt hinnar till.