06.12.1934
Neðri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (4143)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Ég vil nú beina því til hv. þdm., að þeir fari ekki að leiða saman hesta sína, áður en málið er tekið á dagskrá. Ég hét hv. þm. Vestm., að ég skyldi leita mér upplýsinga hjá sjútvn. og eiga svo tal við hann. Ég vænti þess, að hann láti sér það lynda, þó að ég gefi ekki nein ákveðin loforð.