14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í C-deild Alþingistíðinda. (4163)

128. mál, Skuldaskilasjóður útgerðarmanna

Forseti (JörB):

Ég lét í ljós í gær í umr., að ég óskaði eftir því, að menn gættu þess að nota ekki óþingleg orð. Vel má vera, að hv. þm. Ísaf. hafi fundizt hann eiga um sárt að binda, en ekkert græðist á stóryrðum, og vona ég, að þm. gæti þessa betur hér eftir en hingað til.