08.10.1934
Sameinað þing: 3. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 490 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

2. mál, fjáraukalög 1932

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Frv. það til fjáraukalaga, sem hér liggur fyrir til 1. umr., er samið eftir till. yfirskoðunarmanna landsreikninganna, og í sama formi og verið hefir. Vænti ég, að frv. verði vísað til n. að lokinni umr. (MG: En hvar er LR. fyrir 1932?) Frv. um samþykkt á LR. verður lagt fyrir þingið nú á næstunni. (MG: Ég var að spyrja um LR. sjálfan). Ég skal sjá um, að hv. þm. fái hann.