03.10.1934
Sameinað þing: 2. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (42)
Kosning til efrideildar
Forseti (JBald):
Hv. 1. þm. Skagf. hefir spurt mig, á hverju það sé byggt, að lista frá hv. 10. landsk., sem hann segir, að sé form. Bændafl., hafi verið vísað frá. Ég vissi ekki, að þessi hv. þm. var form. Bændafl., en vera má, að hv. 1. þm. Skagf. sé kunnugra um það en mér, en það er þá undarlegt lítillæti hjá hv. 10. landsk. að fara í felur með þessa sína virðingu, og ennfremur, hafi þetta verið flokkslisti, að skjóta sér þá undan að svara fyrirspurn um það, hvort listinn væri flokkslisti. Annars eru í úrskurðinum færðar fram ástæður, sem ættu að nægja hv. 1. þm. Skagf.