20.12.1934
Neðri deild: 65. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (4244)
157. mál, lýðskóli með skylduvinnu nemenda
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Hv. þm. Borgf. viðurkenndi, að hann hefði fylgt málinu áður, a. m. k. viljað veita Rangæingum heimild til að starfrækja svona skóla, enda er vitanlegt, að þeir mundu verða fyrstir manna til þess að nota slíka heimild.
Annars verð ég að segja, að mér þykir það dálítið einkennilegt af hv. þm. Borgf. að rísa hér upp og ásaka flm. frv. fyrir hræsni og aðrar illar hvatir, en minnast ekki á sjálft efni frv. Ég skal svo ekki lengja frekar þessar umr.