15.11.1934
Neðri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í C-deild Alþingistíðinda. (4260)
115. mál, niðurlagning prestlaunasjóðs
Gísli Sveinsson [óyfirl.]:
Herra forseti! Ég tala nú ekki f. h. neinnar sérstakrar nefndar. Ég og hv. þm. Ak. höfum borið fram litla brtt. á þskj. 412. Hún fer fram á það, að ekki sé breytt til í aðalatriðum um innheimtu prestsgjalda. Það er rétt hjá hv. flm. þessa frv., að það er og hefir verið óþarft að halda þessum sjóði við sérstökum. En samt sem áður eru þessi gjöld sérstaks eðlis. Þótt það verði samþ. samkv. frv. að láta þessi gjöld renna beint í ríkissjóð, þá verða þau samt óvenjuleg ríkisgjöld. Það stafar af því, að þessi gjöld, sem hér um ræðir, prests- og kirkjugjöld, eru ákveðin sem einskonar nefskattur. Þetta er rétt, meðan þessu fyrirkomulagi er haldið við, að fólkið viti, að þessi gjöld eiga einvörðungu að renna til uppihalds prestastéttarinnar í landinu. Þetta tel ég koma einna bezt og réttast fram með því móti, að sóknarnefndir hafi innheimtu prestsgjalda áfram á hendi. Þetta er enginn byrðarauki á þeim, því að sóknarnefndirnar gera sínar skýrslur eftir sem áður, innheimta kirkjugjald af sama fólkinu og taka þá þessi gjöld með eins og áður. Í okkar till. er sóknarnefndum utan Rvíkur heimilað að afhenda sýslumanni eða bæjarfógeta á staðnum gjöldin; þeir afhenda þau svo ríkissjóði.
Ég vil benda á það, að það hefir verið svo undanfarin ár, að hlaðið hefir verið fleiri og fleiri störfum á sýslumenn og lögreglustjóra, án þess að taka tillit til þess, hvort þeir gætu afkastað öllum þessum störfum og án þess að þeim væri ætluð nokkur þóknun fyrir ómakið. Hér er að vísu talað um 6% innheimtuþóknun; en það er eingöngu gert fyrir lögreglustjóra. Þessu mætti taka fastara tak, þótt ég telji þess tæplega þörf í þessu litla máli, því að löggjafinn má ekki fara svo að gagnvart þessum embættismönnum, að álíta, að þeir geti tekið öll störf að sér, innheimtu, söfnun skýrslna o. fl., þó að nóg liggi fyrir af störfum. (BJ: Hvað er um sóknarnefndirnar?). Ég býst við, að hv. þm. hafi hlustað á það, sem ég var að segja. Þær hafa samskonar störf með höndum og munar þess vegna ekkert um þetta. Þær munar frekar um þessi 6% heldur en embættismennina. (BJ: Það er ekki ætlazt til þess í brtt.). Þær fá það alveg eins og þær hafa áður fengið þessa þóknun.
Ég vona svo að lokum, að hv. flm. og hv. nm. fallist á þetta og fari ekki að andmæla þessu.