18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (4287)

115. mál, niðurlagning prestlaunasjóðs

Pétur Ottesen:

Ég á eina litla brtt. við þetta frv., sem hefir það eitt í sér fólgið, að í þeim tilfellum, sem hreppstjórar innheimta þessi gjöld, þá renni innheimtugjaldið til þeirra. Annars hefi ég lýst því yfir við 2. umr. þessa máls, að ég mundi greiða atkv. á móti því, og ég mun gera það, hvort sem þessi till. verður samþ. eða ekki.