22.11.1934
Neðri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (4300)
20. mál, ríkisútgáfa skólabóka
Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) [óyfirl.]:
Eins og nál. meiri hl. ber með sér, leggur meiri hl. til, að frv. verði samþ. með nokkrum breytingum. Aðalbrtt. er sú, að smásala er ekki tekin af bóksölum, en að þeim séu greidd 20% sölulaun. Þegar ríkisforlagið hefir heildsöluna, þótti ekki ástæðu til að svipta bóksalana smásölunni, enda hefir það engin úrslitaáhrif á verð bókanna. N. telur, að með ríkisútgáfu og föstu skipulagi, að öllu óbreyttu, gæðum og tilbúningi, ættu bækurnar að geta orðið um 40% ódýrari en nú, eða frá 3050% að jafnaði. Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta að sinni, en geyma mér rétt til að svara útásetningum minni hl.. þegar þær eru komnar fram.