09.10.1934
Neðri deild: 5. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (4401)
24. mál, fátækralög
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl]:
Ég verð nú að segja það, að ég skil hreint ekkert í sálarástandi hv. þm. Barð. Maður á því ekki að venjast, að hann sé svo æstur sem hann virtist vera í ræðu sinni áðan. Viðvíkjandi því, sem hv. þm. V.-Húnv. og hv. 2. landsk. sögðu um hlutfallstölu þá, sem gengið er út frá í frv., vildi ég segja það, að ég tel ekki hægt að komast öllu nær sanngirni. Með þessu er gerð tilraun til að jafna framfærslukostnaði milli dvalar- og framfærslusveitar miðað við landið í heild sinni. Ég verð að segja, svo ég snúi mér aftur að hv. þm. Barð., að ég tel ræðu hans einskisverðan blástur og hreinasta kák. Hann spyr mig, hvar í frv. sé bent á ráð til að bæta hag illa stæðra sveitarfélaga, en ég vil segja það, að þetta frv. er ekki hugsað sem sérstök löggjöf til hjálpar sveitarfélögum, heldur er þetta frv. eins og ég tók fram í framsöguræðu minni flutt sem bráðabirgðabreyt. á fátækralögunum. Í náinni framtíð hefi ég hugsað mér að bera fram víðtækari breytingar og alger nýmæli í löggjöf á þessu sviði, þar sem eru alþýðutryggingar, sérstök lög um opinbera forsjá o. fl. þ. u. l. En sá ótti hv. 3. þm. Reykv., að afnám sveitarflutnings muni draga úr ábyrgðartilfinningu manna, eða það aðhald, sem hann hefir veitt, sé nauðsynlegt, held ég ekki sé á rökum byggður. Þá sagði hv. þm. Barð. í sambandi við þetta, að 9 af 11 hreppum í hans kjördæmi væru að fara á höfuðið, og við það réðum við ekki. En ég sé nú ekki, hvað hann hefir að sakast við mig, þó svona sé ástatt í Barðastrandarsýslu. Neyð þessara hreppa stafar af því, að atvinnuvegirnir hafa gengið illa og atvinna fólksins dregizt saman; í sumum byggðarlögum hefir svo að segja allur atvinnurekstur lagzt niður og ekkert komið í staðinn, þannig að ekki hefir verið mögulegt að leggja á svo há útsvör, að nægðu í útgjöld hreppsins. Ég verð að segja, að það er ekki ófyrirsynju, að frv. þetta er fram komið. Þetta ákvæði fátækralaganna er til skammar, og við vitum líka allir, að því hefir verið beitt af sumum sveitarstjórnum mjög harðneskjulega, enda þótt aðrar hafi farið hægara í sakirnar. Ég veit líka, að sumir læknar eru svo góðsamir, að þeir hafa leiðzt út í að gefa jafnvel hæpin vottorð. Ég skal að lokum taka það fram, af því ég býst við, að mál þetta gangi til allshn., að ef n. vill heldur hverfa að því ráði, að gerbreyta fátækral. í svipað form og við Alþýðuflokksmenn höfum haldið fram að þörf væri á, þá mun ekki standa á mér, en með þessu frv., sem hér liggur fyrir, tók ég aðeins það, sem hendi lá næst og þarfnaðist skjótrar úrlausnar.