12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í C-deild Alþingistíðinda. (4450)
54. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Flm. (Sigurður Einarsson):
(ÓTh): Vill ekki forseti sjá um, að þessi hv. þm. tali á þinglegan hátt?). Ég get sem bezt flutt mig í pontuna. Enginn dm. mun hafa heyrt mig halda því fram, að úrskurður atvmrh. sé rangur, og mér hefir satt að segja ekki komið til hugar að efast um, að hann sé í alla staði réttur samkv. gildandi lögum. Hv. þm. Barð. vék að því, að ekki þyrfti annað en vísa til 19. gr. laganna til að hið sama gildi um varamenn við hlutfallskosningar til hreppsnefnda og nú gildir um bæjarstjórnir. Þegar það er nú athugað, að samkv. lögum geta kjósendur valið um þrjár leiðir, eins og hv. þm. gerði að umræðuefni, þá velja kjósendur vitanlega þá leið, sem þeir telja hagkvæmasta, og það mundi enginn fara að leggja á sig þá fyrirhöfn að smala undirskriftum, svo viðhafa mætti hlutfallskosningar, ef það væri ekki beinlínis gert með það fyrir augum, að með því fengjust meiri réttindi, m. a. í þá átt, að varafulltrúar kæmu inn í forföllum aðalmanna.
Það eru engin rök, að ekki megi lögleiða þessa breyt., þó nokkur hluti hreppsnefndar sé kosinn á annan hátt; breytingin gengur í gildi um þann hlutann við næstu kosningar þar á eftir. Það, sem hv. þm. sagði um grg. frv., var meiningarleysa ein, en mér er ánægja að hafa gefið hv. dm. tækifæri til að hlusta á málsnilld þessa hv. þm. Honum hefir veitzt hér kærkomið tækifæri til að gera gaman að mínu litla lögviti. Ég hefi nú aldrei gefið mig út sem neinn lögspeking, og ekki heldur til þess lært, en ég vil heldur sætta mig við að vita ekkert í þeirri grein en að viðra lögkróka mína hér framan í þdm. á jafnóviðfelldinn hátt og hv. þm. Barð.