12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (4458)

55. mál, þingsköp Alþingis

Flm. (Thor Thors):

Mótbára hv. l. landsk., að hér væri ekki um hlutfallskosningu að ræða, var ærið lítilfjörleg. Vitanlega er hér um hlutfallskosningu að ræða, og ekkert annað, því hér er ekki farið fram á annað en að flokkarnir fái hlutfallslega tölu þm. sinna kosna í Ed. Útúrsnúningur hans um, að forseti geti tilkynnt úrskurð sinn utan funda, er ekki svaraverður.