19.11.1934
Neðri deild: 40. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í C-deild Alþingistíðinda. (4551)

131. mál, kaup á hlutabréfum í Útvegsbanka Íslands

Héðinn Valdimarsson:

Það er erfitt að svara hv. 3. þm. Reykv. Hann stendur fast á því, að þeir innstæðueigendur, sem tapa vegna Íslandsbanka, séu þeir, sem lagt hafa hlutafé í bankann, aftur á móti tapi þeir engu, sem ekki hafi lagt í hlutafé.