09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

10. mál, bráðabirgðaverðtollur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. fer fram á það, að bráðabirgðaverðtollurinn, sem lagður var á með lögur nr. 11 1933, verði framlengdur fyrir árið 1935. Hygg ég af því, sem áður er fram komið í sambandi við fjárlagafrv. og þau frv., sem því fylgja, að ekki þurfi að fara um þetta mörgum orðum, en óska, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umr.