10.10.1934
Sameinað þing: 4. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í D-deild Alþingistíðinda. (4657)

52. mál, ábyrgð á láni

Flm. (Magnús Guðmundsson):

Ég get tekið undir það með hæstv. fjmrh., að ég lít ekki svo á, að í þessari ábyrgðarheimild myndi felast nokkur skuldbinding gagnvart öðrum ábyrgðarumleitunum. En þar sem búið er að gefa hreppsn. undir fótinn um ábyrgð og verkið hefir verið framkvæmt í trausti þess, að ábyrgðin fengist, sýnist mér ekki annað hægt en samþ. þessa till.