28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (4688)

163. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Hannes Jónsson:

Ég vil spyrja hæstv. forseta, af því að ég veit, að hann er sanngjarn maður, hvort honum finnist sanngjarnt, að tvö mál, sem annað er flutt hálfum öðrum mánuði fyrr, eigi að hafa sama gang í þinginu. Ef hæstv. forseti svarar þessu játandi, þá veit ég ekki, hvað ég kann að gera fyrir hann, en þá held ég, að ég verði að telja hann ósanngjarnan.