13.12.1934
Efri deild: 60. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í C-deild Alþingistíðinda. (4888)

140. mál, hússtjórnar- og vinnuskóli fyrir konur í Reykjavík

Guðrún Lárusdóttir:

Það er að vísu langt síðan þetta mál var borið fram, og hefir því gefizt nægur tími til að ræða um það, en ég sé, að ef afgreiðsla málsins fer á þann veg, að dagskráin, sem því fylgir, verður samþ., þá er það þar með úr sögunni. En þrátt fyrir það vonast ég til, að málið komi til umræðu, annaðhvort nú eða seinna.