14.11.1934
Efri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í C-deild Alþingistíðinda. (4905)

147. mál, atvinnudeild við Háskóla Íslands

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og menn hafa tekið eftir í grg. fyrir báðum þessum frv., frv. um Háskóla Íslands og þessu, eru bæði málin flutt samkv. beiðni hæstv. kennslumálaráðh. Ég skoða það sem sjálfsagðan hlut, að menntmn., sem flytur þessi mál og getur þess í grg., að hún muni ef til vill síðar bera fram brtt. við þau, muni taka þau á ný til athugunar, þótt þeim sé ekki sérstaklegu til hennar vísað. Ég álít þetta liggja í hlutarins eðli.