28.11.1934
Efri deild: 49. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í C-deild Alþingistíðinda. (4930)
154. mál, hafnarlög fyrir Siglufjarðarkaupstað
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Eitt ákvæði í þessu frv. er nýmæli, að því er snertir hafnarlög, og það er að heimila bæjarstj. að leggja aukavörugjald á inn- og útfluttar vörur til þarfa bæjarsjóðs. Þetta ákvæði ætti frekar heima í sérstökum lögum en í hafnarlögunum, en það er nauðsynlegt vegna sérstöðu Siglufjarðar að fá slíka heimild nú þegar, en óvíst, að slík almenn heimild geti, vegna þess hvað áliðið er þings, náð lögfestu á þessu þingi. Það má henda á, að nýlega hafa þarna orðið skemmdir á eignum bæjarsjóðs, og þarf á næstu árum tugi þúsunda til að endurbæta þær. Til þess að tefja ekki fyrir þessari nauðsynlegu heimild, þá hefir það orðið að samkomulagi, a. m. k. milli tveggja nm., að láta þetta ákvæði halda sér í frv. með þeirri breyt., að það gildi aðeins í hafnarl. þangað til öðruvísi kann að verða ákveðið með almennum lögum. Það eru fleiri bæjarfélög, sem hafa farið fram á slíka heimild, en Vestmannaeyjar eru eini staðurinn, sem hefir fengið slíka heimild. Það er svo um mörg bæjarfélög, að þau eru svo aðkreppt um gjaldstofna, að það er nauðsynlegt fyrir þau að fá eitthvað nýtt til uppbótar útsvörunum, sem bregðast svo mjög á svona tímum, og þá einkum nú, þegar tekju- og eignarskattur til ríkisins verður hækkaður svo mjög sem útlit er fyrir, að gert verði á þessu þingi. N. kemur því með þá brtt., að ákveðið haldi sér í frv., en gildi aðeins þangað til öðruvísi verður ákveðið með almennum lögum.
Þá er ákvæðið um ríkissjóðstillag, sem á að greiðast á næstu 4 árum. N. hefir ekkert við það að athuga, en það verður að fara eftir getu ríkissjóðs í hvort skipti og hvað hafnarsjóður getur innt af hendi í greiðslur til framkvæmda verkinu.