29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (5017)

169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Í samræmi við það, sem ég sagði við fyrri umr., ber ég þessa till. fram, í samráði við hæstv. fjmrh.

Ég hefi afhent hæstv. forseta skrifl. brtt. um, að á eftir orðinu „lán“ komi „gegn fullum tryggingum“. Ennfremur till. um, að niðurlagsorð gr. („enda ... ekki notuð“) falli niður.

Vona ég, að hv. d. fallist á þetta.