29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (5025)

169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er eðlilegast, að þetta sé orðað eins og hv. fyrri þm. Skagf. talaði um. Þetta mun líka hafa verið venja, þar til út af því var brugðið með Vestmannaeyjakaupstað í síðasta fjárlagafrv. Ég get því vel fallizt á þetta, og má þá vænta þess, að liðlega verði tekið undir það að leiðrétta till. Hafnarfjarðarkaupstaðar, ef á þarf að halda.