29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í D-deild Alþingistíðinda. (5026)

169. mál, ábyrgð á láni fyrir Vestmannaeyjakaupstað

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Ég skal lýsa yfir því, að það var vegna samræmis við till. Hafnarfjarðarkaupstaðar, að ég bar brtt. mína fram. Eftir að hafa heyrt leiðbeiningar hv. 1. þm. Skagf. og yfirlýsingar hæstv. ráðh., get ég hinsvegar vel fallizt á að breyta till. í þá átt, er hv. 1. þm. Skagf. benti á. Virðist þá rétt, að till. Hafnarfjarðarkaupstaðar sé einnig breytt í þessa átt.