17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í D-deild Alþingistíðinda. (5075)

86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Út af ummælum hv. form. sjútvn. vil ég geta þess, að um leið og þetta mál var afgr. minntist ég einmitt á það, að það væri formgalli á till., sem lagfæra yrði við umr. Ég skal fúslega viðurkenna það, að ég kom ekki auga á þennan formgalla fyrr en hæstv. forseti var búinn að benda mér á hann. Þetta ætti að geta verið augljóst og einfalt mál öllum hv. þdm., og þeir, sem samþ. vilja aukningu ljósmagns vitans, samþ. vitanlega bæði brtt. og aðaltill., en hinir, sem eru þessu mótfallnir, geta leitt það hjá sér.