17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (5083)

86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða

Forseti (JörB):

Þessi till. hv. þm. Hafnf. kemur nokkuð seint, því að ég er búinn að slíta umr. (EmJ: Má ekki fresta umr.?). Það er ekki hægt að fresta umr., þegar búið er að slíta þeim. (EmJ: Það má fresta atkvgr.). Það er gagnslaust. Það er aðeins eftir ein umr. um málið. Það er ekki hægt að bera fram brtt. hér eftir, svo að allar leiðir eru lokaðar til leiðréttingar, því miður, því að æskilegt væri, að hv. sjútvn. fengi þetta mál til nánari athugunar.