17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (5085)

86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða

Páll Þorbjörnsson:

Út af þeim ummælum hv. þm. Vestm., að ég hefði elt hans till. með minni, vil ég vitna til þess, sem gerðist í sjómannafélaginu hér, því að þar fóru fram umr. milli mín og þeirra um þetta mál, löngu áður en hv. þm. kom fram með sína till. hér í hv. deild, enda þótt ég hafi orðið 1—2 dögum á eftir honum með mína till., svo að það er ómögulegt að halda því fram með nokkurri sanngirni, að ég hafi elt hans till. með minni.