19.12.1934
Sameinað þing: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (5125)

165. mál, kryddsíldartollur í Danmörku

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég vil mæla með því, að þessi till. verði samþ. Stj. mun leitast við eftir föngum að fá því til vegar komið, að Íslendingar fái jafna aðstöðu við Dani í þessu efni, eins og Danir hafa samkv. sambandslögunum jafnan rétt við okkur til síldveiða hér við land. Um árangurinn þori ég hinsvegar ekki að fullyrða neitt fyrirfram.