27.11.1934
Sameinað þing: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (5137)

166. mál, verslunarerindrekar í Mið-Evrópu

Forseti (JBald):

Þetta kann að vera rétt hjá hv. þm. Barð. En ekki er víst, að á næsta ári komi til greiðslu vegna þess, sem farið er fram á í till. Það er búið að ákveða eina umr. mótmælalaust, og ég sé ekki annað en við það verði að sitja. Vil ég líka benda hv. þm. á, að það mætti hafa þá aðferð að vísa till. til fjvn. og fresta umr., ef ástæða þætti til. (BJ: Það kemur vitanlega í sama stað niður).