10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 49 í D-deild Alþingistíðinda. (5138)

166. mál, verslunarerindrekar í Mið-Evrópu

Forseti (JBald):

Því var hreyft eftir að ákveðin hafði verið ein umr. um þessa þáltill., að réttara væri að hafa um hana tvær umr. Af því að um það má deila, hvort till. felur í sér útgjöld fyrir ríkissjóð, sem ekki sé gert ráð fyrir í fjárl., þá þykir rétt að bera það undir atkv. þingmanna, hvort hafa skuli tvær umr., og ef það verður samþ., þá skoðast þetta fyrri umr.