12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (568)

8. mál, tekju- og eignarskattsauki

Ólafur Thors:

Þetta er að vísu rétt hjá hv. þm. V.-Ísf., en um þetta sérstaka mál, sem nú liggur fyrir, má bæta því við, að Sjálfstfl. hefði óskað eftir, að hægt væri að komast að endanlegri niðurstöðu um tekju- og eignarskattinn, eða a. m. k. sjá betur en nú er hægt, hver afdrif stjfrv., sem fyrir þinginu liggur um þetta efni, muni verða, áður en hann tekur endanlega ákvörðun um þetta mál.