13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (577)

8. mál, tekju- og eignarskattsauki

Ólafur Thors:

Þetta er leiðinlegt skilningsleysi hjá hæstv. ráðh. Ég gat þess í gær, að Sjálfstfl. teldi tímabært, þegar fyrsta skattafrv. kemur fram, að geta um það, hvaða almenna afstöðu hann tæki um tekjuaukafrv. Annars er þetta leið tilhneiging hjá honum að vilja vera að spila sig sem einhvern fræðara sér eldri og reyndari manna. Ætti hann að leggja það niður að tefja þannig tímann og auka á málalengingar, sem við viljum allir forðast. Þetta er kennsla, sem ég veiti þessum unga manni af góðum hug.