01.10.1934
Efri deild: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í B-deild Alþingistíðinda. (64)

Kosning fastanefnda

Jónas Jónsson:

Það hefir stundum átt sér stað að fjölga í nefndum, þó frekar í öðrum nefndum en landbn. Hvað það snertir að fjölga í henni nú, þá tel ég ekki hægt að ganga frá því að þessu sinni. A. m. k. verður þá að fresta fundi, eða þá að öðrum kosti að bæta við í nefndina síðar.