01.10.1934
Efri deild: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

Kosning fastanefnda

Jón Baldvinsson:

Mér finnst rétt að taka till. hv. 2. þm. Rang. til velviljaðar athugunar. Það er aldrei nema satt, að nauðsynlegt er að nota starfskrafta þingsins eftir því sem föng eru til og við verður komið. Ég vildi því leggja til, að nefndarkosningu þessari yrði frestað nú, eða gefið stutt fundarhlé.