17.10.1934
Neðri deild: 12. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
23. mál, tilbúinn áburður
Ólafur Thors:
Ég þakka hæstv. forseta fyrir loforð það, sem hann gefur, um að hlífa mönnum við þingdf. þessi föstu fundarkvöld flokkanna. Ég vil nú ekki gera það að kappsmáli, þó að þessi góði ásetningur hæstv. forseta komi ekki til framkvæmda í kvöld, en vildi þó beina því til hans, hvort hann telji ekki rétt að bera þessa ákvörðun undir þd. að þessu sinni.